Nýtt hverfi, ný upplifun
Í Áslandi í Hafnarfirði rís nú ný og metnaðarfull byggð þar sem arkitektúr, náttúra og lífsgæði mætast. Raðhúsin að Axlarási 50–66 bjóða upp á nútímaleg heimili í nálægð við helstu útivistarsvæði, með stuttum tengingum við þjónustu og samgöngur. Hér færðu að sameina rólegan, grænan lífsstíl og hágæða byggingarfrágang.
Hönnun sem stenst tímans tönn
Arkís arkitektar hafa skapað heimili sem nýtur sín í fallegu umhverfi, með skýra áherslu á birtu, útsýni og hámarks notagildi. Byggingin er úr steinsteypu með álklæðningu og Dekton plötum sem tryggja lágmarks viðhald og langan endingartíma. Lunawood timbur, hágæða ál/tré gluggar og vönduð frágangsefni mynda heild sem mun standast kröfur nútímans langt fram í tímann.
Tegundir
Axlarás 50 - 66 býður upp á 3 tegundir raðhúsa.
Tegund C
Fjöldi : 2
Herbergi
5
Birt stærð
222,7m2
Svalir
60,4m2
Verð frá 149,3 mkr.
Tegund B
Fjöldi : 9
Herbergi
5
Birt stærð
213,8m2
Svalir
60,7m2
Verð frá 146 mkr.
Tegund A
Fjöldi : 2
Herbergi
5
Birt stærð
222m2
Svalir
91,8m2
Verð frá 154,3 mkr.

